Í ræðu sinni á VI Heimsþingi um fjölskyldur í
Madrid, Spáni, lagði öldungur Erich W. Kopischke, af hinum Sjötíu og
forseti Evrópusvæðis Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu,
áherslu á mikilvægi hjónabandsins og fjölskyldunnar í nútíma samfélagi.
Systir Mary Ellen Smoot, fyrrverandi aðalforseti Líknarfélagsins, sem er
kvennfélag kirkjunnar, kynnti ræðuna hans.
Honum
var boðið að mæla til áheyrenda á opnunarhluta þingsins og þar sagði
hann: „Siðmenning og samfélög verða aðeins jafn sterk og fjölskyldur
þeirra. Hugmynd þessi hefur líklega verið sögð ótal sinnum á
fjölskylduráðstefnum og ráðstefnum eins og þessum víða um heim. Ég ætla
að bæta við þann augljósa sannleika eftirfarandi staðhæfingu:
Fjölskylda getur aðeins verið jafn sterk og hjónabandið sem hún byggist
á.“
Samhliða samkomum þingsins sótti
öldungur Frerich Görts, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í þýsku
ríkisstjórninni og núverandi fulltrúi kirkjunnar hjá stofnunum Sameinuðu
þjóðanna, alþjóðlegan þingræðislegan umræðufund.
Á
umræðufundinum voru þekktir aðgerðasinnar og leiðtogar samfélags-,
menntunar- og rannsóknarstofnana ‒ sem standa vörð um fjölskylduna og
grundvallarreglur lífsins ‒ ásamt stjórnmálafulltrúum, komnir þar saman
til að kryfja og finna hugsanlegar lausnir á stjórnmálalegum og
löggjafalegum þáttum, sem og áhrif þeirra á siðmenningarsamfélög.
Meðan
öldungur Kopischke ávarpaði yfir 2000 manns, sem voru fulltrúar hundruð
fjölskyldustofnana og fræðisetra, og öldungur Görts ræddi við
stjórnmálaleiðtoga samfélaga, sáu trúboðar almannatengsla, öldungur Jim
og systir Carol Brande, um bás á sýningasvæði Heimsþings um fjölskyldur,
með hjálp kirkjumeðlima á svæðinu.
Þess
var vænst að hinn fallegi og hlýlegi bás, þar sem fjölskyldukvöldið var
kynnt, sem kirkjan innleiddi árið 1915 til að hvetja foreldra til að
styrkja fjölskylduböndin, myndi laða að hundruði gesta. Þar gátu gestir
horft á valin fjölskyldutengd myndbönd, kynnst því hvernig kirkjan
stendur vörð um hina hefðbundnu fjölskyldu og haft með sér eitthvað
sérstakt til minningar.
Sýningarsvæðið var opið þar til þinginu lauk, sunnudaginn 27. maí.
Nenhum comentário:
Postar um comentário